Taco-pizza ;)

08/07/2010 at 11:40 (Heitur matur, Uppskriftir)

Ég gerði hrikalega góða Taco pizzu í gær! Sló í gegn hjá okkur báðum en það er svosem ekkert furðulegt þar sem við erum nokkurskonar mannlegar ruslatunnur og finnst langflest gott sem í okkur er látið =] Þetta tekur mjög stuttan tíma að gera og er einstaklega ljúffengt!

Taco-pizza

  • 1 taco pönnukaka
  • Taco sósa
  • Rifinn ostur
  • Kjúklingur (eða annað kjötmeti)
  • Nokkrir bitar af rauðri papriku
  • 2 Sveppir, skornir niður
  • 1-2 jalapeno skífur, skornar niður í litla bita
  • 1 ananas skífa, skorin niður
  • 1 hvítlauksrif, skorin eða pressuð
  • Svartur pipar
  • Oregano

Ég byrjaði á því að brytja niður tvær bringur af kjúkling og steikti þær uppúr smá olíu og kryddaði með Taco kryddi. Svo setti ég taco sósu á taco-pönnuköku og smá ost yfir til að festa áleggið. Svo setti ég slatta af litlum kjúklingabitum ásamt öllu hinu. Svo setti ég ost yfir og svartan pipar og oregano yfir ostinn, og svo inní ofn á ca 200°C í nokkrar mín, kannski 10 mín. Svo þarf bara að fylgjast nokkuð vel með svo pönnukakan verði ekki of hörð, en það er svakalega gott að hafa hana samt stökka á endunum, ég passa mig að setja enga sósu á endana á pönnukökunni til að gera endana crispy. Ég gerði eitt stykki á mann af þessu og þetta var bara temmilega mikið fyrir okkur bæði, enduðum bæði södd og sæl og horfðum svo á HM meðan við meltum góðgætið ;]

Kannski ég bjóði elsku vinkonum mínum upp á svona þegar ég verð komin í nýju fallegu íbúðina mína í ágúst :] En væntanlega með mismunandi áleggi þar sem allir fíla ekki það sama, engar áhyggjur stelpur mínar :]

Það sem gerir þetta líka enn betra er að taka pizzuna út þegar hún er alveg að verða tilbúin og setja smá mulið Doritos snakk yfir og setja inn í ofn í ca 2 mín eða svo.

1 ummæli

  1. Eyrún sagði,

    Mmmm! Hljómar vel :D

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.