Tan
Það er alltaf gaman að vera með pínu lit á húðinni. Þar sem flestir íslendingar eru allir næpuhvítir yfir veturinn byrgja sig margir upp af brúnkukremum eða ljósakortum.
Ég ætla þó að byrja á því að viðra þá skoðun mína að ég skil ekki þessa ljósabekkjamenningu hjá fólki. Ég fór í ljós hér á árum áður en eftir að ég fór að spá aðeins meira í hlutunum þá þarf nú ekki að hugsa mikið til að átta sig á því að þetta er stórhættulegt! Ég skil alveg að fólk vilji vera með fallegan lit, en ég skil ekki að fólk skuli enn í dag vera að fara og liggja í grilli í 15-20 mínútur til að fá smá lit á líkamann. Húðkrabbamein er orðið miklu algengara eftir að ljósabekkjanotkun varð að einhverskonar trendi. Og til hvers, til að líta út eins og ofeldaður kjúklingur í mörgum tilfellum og í þokkabót munu margir o koma til með að líta út eins og leðursófasett á sínum eldri árum. Ekki fallegt! En auðvitað verða ekkert allir þannig, en það er samt skelfilegt að sjá fólk þannig.
Ég nota alltaf brúnkukrem og ef ég er að fara eitthvað voða fínt, þá skelli ég mér bara í airbrush degi fyrir stóra viðburðinn :] Það er dýrt að fara í airbrush en það margborgar sig ef maður ætlar að vera voða fínn. Til dæmis fyrir stórar veislur og yfir hátíðar.
Ég hef átt skrilljón tegundir af brúnkukremum. Þau sem ég hef oftast keypt mér eru California Tan og Brazilian Tan. En mér finnst orðið hrikalega vond lykt af California Tan og hún er svo yfirþyrmandi í þokkabót. Síðast þegar ég setti það á fór fékk ég næstum blóðnasir af fnyknum. Er búin að gefast upp á því. Svo finnst mér ég verða eiginlega of kaffibrún af Brazilian Tan. Þannig að ég er komin á það að kaupa alltaf Dove Summer Glow – beauty body lotion.
Ég reyni að setja það á mig annanhvern dag (hinn daginn set ég á mig Elizabeth Arden body cream). Dove lætur mann fá mildan lit á líkamann. Svo er þetta mjög ódýrt og mér finnst aðalkosturinn vera sá að það er ekki yfirþyrmandi eða vond lykt af þessu, eins og af flestum brúnkukremum. Mér finnst frekar góð lykt af þessu.
Ég nota svo sér brúnkukrem fyrir andlitið. Það er frá Nivea og heitir Sun Touch – Self Tan Face Creme. Ég samt set ekki oft brúnkukrem í andlitið. Mér finnst það stífla svitaholurnar. Þannig að þetta er bara svona einu sinni í viku eða svo.
Svo er auðvitað nauðsynlegt að skrúbba líkamann vel áður en brúnkukrems
maraþonið byrjar. Ég nota alltaf grófa hanska úr The Body Shop þegar ég fer í sturtu og skrúbba mig hátt og lágt til að hafa húðina í sínu besta standi og tilbúna fyrir brúnkukremið. Ég hef nokkrum sinnum keypt mér dýrum dómum þar til gerð skrúbb, en þau eru bara svo fjandi dýr yfirleitt og þessir hanskar eru líka ekkert síðri og þar að auki endast þeir töluvert lengur :] Svo er voðalega þægilegt að geta skrúbbað létt yfir andlitið eins og einu sinni í viku með þeim og svo gott rakakrem á eftir :]


Eyrún sagði,
24/02/2010 kl. 18:23
Ánægð með þig gamla! Ég nota einmitt alltaf Dove, finnst það vera minnst “ertu með brúnkukrem?” Frekar eðlilegt bara. Á líka andlits-tanið frá þeim, það er mjög fínt og ég hef aldrei fengið neinn einasta flekk af því. Annars er ég sammála þessu með svitaholurnar :/ og grilluðu kjúklingana! Hef einu sinni á ævinni farið í ljós og fannst það nú bara óþægilegt.
En hvenær fara menn að framleiða krem sem ýkja upp á manni freknurnar? Það er eitthvað sem ég myndi kaupa! Ég sakna þeirra á veturnar…
Elísa sagði,
24/02/2010 kl. 22:34
Ég er alveg sammála með þessa óþolandi brúnkukremsfýlu. Ég notaði t.d. alltaf Kanebo honey glow sem er alveg ótrúlegt að því leyti að það er nánast ómögulegt að verða flekkóttur af því. En þvílík og önnur eins fýla af einu brúnkukremi! Ojbara, ég gat varla verið nálægt sjálfri mér.
Alda sagði,
03/03/2010 kl. 19:53
Hæ, Alda hér með þér í sálfræðinni
ég hef einmitt verið að leita mér að einhverju góðu brúnkukremi. Hef prófað þetta frá Dove en mér fannst vera mjög vond lykt af því! En ég hef ekki prófað mikið annað þannig að ég hef ekki nægan samanburð, er þetta kannski með minnstu lyktinni?
og ég er sammála Eyrúnu.. ég vil freknurnar mínar á veturna! ég sakna þeirra ósegjanlega
Alda sagði,
03/03/2010 kl. 19:57
*lyktina…
Elisabeth II sagði,
03/03/2010 kl. 20:31
Mér finnst þetta vera allavega mildasta lyktin sem ég hef fundið. Ég fæ oftar en ekki höfuðverk af brúnkukremum, en ekki Dove
En ég skal láta vita ef ég finn eitthvað mildara..
Ólöf Lilja sagði,
15/03/2010 kl. 11:22
Ég nota brúnkukrem frá Clarins, Delicious self tanning cream with unsaponifiables of cocoa.
Það er mjög gott, og maður verður alls ekki flekkóttur, heldur fallega bronsaður =) Ég er samt svo viðkvæm fyrir brúnkukremum, en ég set þetta krem á mig, hef á andlitinu í 3 klst og þríf svo af mér og þá finnst mér ég vera bara nokkuð fín:) Galdurinn er að setja ótrúlega lítið magn og dreifa vel úr og nudda vel inn í húðina þannig að það er eins og maður sé ekki með neitt í andlitinu.
En ég keypti þetta krem í Hagkaup, þetta er stór krukka sem endist vel og lengi og það er mjög góð súkkulaðikaramellulykt af því