Sigga Gróa á Face
Mér finnst mjög mikilvægt að vera með fallegar og vel mótaðar augabrúnir. Mér finnst þetta vera eitt það mikilvægasta við andlitið, því vel mótaðar brúnir ramma inn andlitið. Ég hef stundum trassað það að fara í lit og plokk og verið að hamast við það að farða mig – og alltaf er niðurstaðan sú sama. Ef ég er ekki með vel mótaðar augabrúnir þá finnst mér farðinn gera sáralítið fyrir mig! En um leið og búið er að móta brúnirnar mínar finnst mér ég líta betur út og miklu skemmtilegra að farða mig, sérstaklega að setja á mig augnfarða.
Ég var eitt sinn módel í keppni á meðal snyrtifræðinga. Sú sem snyrti mig fékk Íslandsmeistaratitilinn fyrir litun á augnhárum og augabrúnum og vaxi/plokkun á brúnum. Ég vil bara fara til hennar í lit og plokk. Hún heitir Sigga Gróa og vinnur á Face snyrtistofu á Akranesi. Ég bý í Reykjavík, en ég geri mér samt fer upp á Akranes til að fara til hennar í lit og plokk, því mér finnst vel þess virði að borga bensín og í göngin til að fá brúnirnar eins og ég vil hafa þær. Ég mæli hiklaust með henni ef þú vilt fá fallegar og vel mótaðar brúnir. Hún er einfaldlega best, eins og Íslandsmeistaratitillinn gefur til kynna!

Ólöf sagði,
20/02/2010 kl. 16:59
Ég er sammála
Hún er rosalega góð.