Hreinsun

15/02/2010 at 19:10 (Snyrting)

Ég er með frekar erfiða húð! Ég þarf að hugsa vel um hana til að fá ekki einn af mínum verstu óvinum í heimsókn, bólur! Ég var alltaf með frekar feita húð þegar ég var yngri – en ég fór til húðsjúkdómalæknis fyrir um tveimur árum síðan og síðan þá hefur húðin verið í góðu lagi, fyrir utan einstaka bólur sem koma vegna leti minnar í að huga vel að húðinni með hreinsun og þess háttar. Það er stundum svo freistandi að fara bara að sofa án þess að taka make-upið af! En það á maður ekki að leggja í vana sinn, það er misþyrming á húðinni!

Ég þríf mér alltaf með volgum þvottapoka á morgnanna og kvöldin. Þegar ég fer í sturtu þá nota ég alltaf Wash-off! frá Nivea. Þetta er hægt að nota bæði til að taka farðann af og til að hreinsa húðina. Þetta er sett á blauta húð og nuddað vel.

Ég nota þetta samt bara einu sinni á dag, aldrei oftar því þetta getur þurrkað húðina, allavega mína. Ég fæ alveg þvílíkt svalandi tilfinningu í húðina á því að nota þetta, svo skemmir ekki fyrir að þetta er frekar ódýrt. Vikulega nota ég svo Clean deeper frá Nivea. Það hentar mjög vel húð sem er blönduð.

Bláu kornin í þessu hjálpa til við að hreinsa svitaholurnar í andlitinu og halda þeim hreinum. Þetta set ég á blauta húðina og nudda vel. Líkt og Wash off! er þetta einnig ódýr en góð vara. Stundum hef ég meira að segja notað sjávarsalt til að hreinsa húðina. Þá bleyti ég bara andlitið og nudda sjávarsalti mjúklega á allt andlitið með hægum hringlaga hreyfingum á lítið svæði í einu og það svínvirkar!

Yfir vetrartímann nota ég alltaf rakakrem á andlitið, því kuldinn þurrkar húðina svo mikið. Ég hef ekki lengur tölu á hversu mörg rakakrem ég hef prófað og borgað morðfjár fyrir og alltaf endað með extra feita húð fyrir vikið og bólur í smettinu. En núna er ég búin að finna krem sem hentar mér mjög vel og það er Hýdrófíl – án olíu frá Gamla Apótekinu. Þetta er einnig mjög ódýrt og mikið magn í hverri túpu sem er auðvitað bara frábært!

Svo er eitt að lokum. Það eru alltof margir sem gera stóran feil þegar þeir setja á sig rakakrem, þeir maka þessu á sig og svoleiðis að drekkja húðinni í því. Það er algjört nónó! Þegar sett er of mikið þá fer rakakremið ekki inní húðina eins og því er ætlað, heldur liggur það bara ofan á andlitinu.

Þegar kemur að rakakremi gildir hin gullna regla; less is more!

2 Ummæli

  1. Elísa sagði,

    Kannski maður prófi þetta Nivea Young :)

  2. Eyrún sagði,

    Nákvæmlega! Sammála Elísu. Gott að hafa þetta í sturtunni :)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.