Elizabeth Arden

13/02/2010 at 14:56 (Body, Ilmur, Snyrting)

Ég er mjög hrifin af Elizabeth Arden vörunum og hef verið það í nokkur ár. Mér finnst ilmurinn af þeim svo einstaklega ferskur. Ég keypti mér ilmvatn fyrir um tveimur árum sem heitir Green Tea – en ég fer alveg að vera búin með það og mig hryllir við því, því það eru öll ilmvötn orðin svo svakalega dýr í dag! En þetta er bara vara sem ég verð að eiga. Það er svo gott við þennan ilm að hann er mildur en mjög ferskur. Þetta er ekki svona megn ilmvatnslykt, heldur bara ferskleiki. Allavega að mínu mati.

Ég verð alltaf voðalega þurr í húðinni eftir bað- og sundferðir og hef alltaf keypt mér body lotion reglulega. En yfirleitt líður mér eins og ég hafi bara verið að maka á mig smjöri og hef því aldrei haldið mig við eitt fyrr en ég prófaði Body Cream frá Elizabeth Arden, með sömu lykt og ilmvatnið hér fyrir ofan. Ég keypti mér stóra dollu og reyni að bera kremið á mig annan hvern dag. Í kreminu eru honey drops sem gera húðina alveg sérstaklega mjúka og svo fær hún fallegan gljáa. Yndislegt.

Ég er einstaklega ánægð með þessar vörur og ætla næst að  að láta einhvern sem ég þekki sem á leið í gegnum fríhöfnina að kaupa þetta fyrir mig, þá sparar maður eflaust einhverja hundrað kalla, jafnvel þúsund kalla!

5 Ummæli

  1. Eyrún sagði,

    Ég hata líka sérstaklega body butter (þó það sé eiginlega lífsnauðsynlegt fyrir mig að nota krem fyrir þurra húð) því þetta er svo klístrað og jafnvel þó maður beri þetta á sig á kvöldin, þá vaknar maður klístraður á morgnanna! Ég þarf greinilega að prófa þetta! :)

  2. Marella sagði,

    Ég nota ALLTAF Elizabeth Arden!! Algjör snilld!

  3. Elisabeth II sagði,

    Eyrún, þú getur komið til mín og prófað áður en þú mögylega kaupir þér eitt stykki. Nóg til hérna af Body Cream ;)

  4. Elisabeth II sagði,

    Þetta er algjör snilld Marella, ég er alveg sammála þér! Ég gæti étið þetta, nema það væri eflaust ekki jafn gott inní líkamanum eins og utaná honum ;)

  5. Þóra Geirlaug sagði,

    oh, ég er svo sammála, kremið er náttúrulega bara snilld

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.